22.05.1984
Sameinað þing: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6586 í B-deild Alþingistíðinda. (6191)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Vigdís Finnbogadóttir):

Gefið hefur verið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Alþingi, 106. löggjafarþing, lýkur störfum í dag, þriðjudaginn 22. maí 1984.

Gjört í Reykjavík, 22. maí 1984.

Vigdís Finnbogadóttir.

Steingrímur Hermannsson.“

Samkvæmt þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið.

Óska ég þingmönnum velfarnaðar, þjóðinni allra heilla og bið alþingismenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp og sjútvrh., Halldór Ásgrímsson, mælti:

„Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.