17.10.1983
Neðri deild: 4. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í B-deild Alþingistíðinda. (62)

22. mál, þingsköp Alþingis

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það er farið fram á ansi mikinn vinnuhraða í þinginu og starfsmenn eru á fullu við að prenta nál. allshn. þar sem hún mælir með því að 22. mál Nd. á þskj. 22 verði samþykkt af deildinni. Nefndin varð sammála um þessa afgreiðslu. en fjarverandi var Pálmi Jónsson.