15.11.1983
Sameinað þing: 19. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 830 í B-deild Alþingistíðinda. (667)
20. mál, hjartaskurðlækningar á Landspítalanum
Birgir Ísl. Gunnarsson:
Herra forseti. Þótt í fsp.-tíma sé, þegar ræðumenn hafa ekki allt of langan tíma, vil ég samt fagna þessum umr. og þeim upplýsingum sem hæstv. utanrrh. hefur gefið. Það er rétt sem hér hefur verið bent á að ýmsar ályktanir hafa borist frá ýmsum félagasamtökum, m.a. í Norðurl. e., en ég tel að þær ályktanir byggist á miklum misskilningi, misskilningi sem nauðsynlegt sé að eyða, eins og hæstv. utanrrh. hefur gert hér í dag.
Ég var á ferðalagi nú síðla sumars á Þórshöfn og var þar m.a. á stjórnmálafundi. Þar stóðu upp menn sem voru uppfullir af hugmyndum um það að í næsta nágrenni við þann stað ætti að fara að byggja mikla herstöð, þar ætti að fara að byggja flugvöll og miklar og umfangsmiklar radarstöðvar og þar yrðu jafnvel fleiri hundruð manns áður en langt um liði. Ég reyndi að hrekja þennan áróður en spurði jafnframt: Hvaðan er þetta komið? Hvaðan eru svona fullyrðingar komnar? Svörin voru: Forsvarsmenn Alþb. í þessu kjördæmi ganga hér um og segja að þetta standi til hér hjá okkur. Er það nokkur furða, þegar menn sem litið er á sem ábyrga stjórnmálamenn haga sér þannig, að almenningur blekkist af slíkum áróðri?
Það er líka athyglisvert að taka eftir því að það orð sem ávallt er notað hér í þessum umr. er „árásarstöðvar“. Hvaða tilgangi þjónar það að hafa uppi slíkt málfar þegar verið er að tala um varnarstöðvarnar hér á landi, að hér sé um árásarstöðvar að ræða? Er nokkuð líklegra til að skapa hættu hér í okkar landi en sá síbyljuáróður sem Alþb. rekur um að hér séu stórkostleg árásarhreiður í okkar varnarstöðvum?
Við skulum muna það að síðan 1945 hafa verið háðar 140 styrjaldir víðs vegar um heiminn og í þeim hafa látið lífið 10 milljónir manna og margfalt fleiri særst og mikið eignatjón orðið. Okkar svæði er eitt af fáum svæðum í heiminum sem hafa sloppið við styrjaldir. Og ástæðan er sú að varnarkeðja vestrænna þjóð hefur varnað því að styrjaldir væru háðar hér á okkar landsvæði. Þessa varnarkeðju vilja Alþb.-menn rjúfa umfram allt eins og þessar umr. sýna Af þeirri starfsemi þeirra og af þeim áróðri sem þeir halda hér uppi stafar okkur meiri hætta en af nokkru öðru í þessari viðsjárverðu veröld sem við lifum í.