15.11.1983
Sameinað þing: 19. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 856 í B-deild Alþingistíðinda. (704)

393. mál, fundargerðir bankaráða

Fyrirspyrjandi (Stefán Benediktsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að spyrja hæstv. viðskrh. spurningar sem ekki þarfnast mikillar umfjöllunar. Mér var það í raun og veru ekki ljóst fyrr en að athuguðu máli að fundargerðir fyrirtækis, sem Alþingi í raun og veru skipar í, berast ekki hingað að öllu jöfnu. Þess vegna leyfi ég mér að spyrja þeirrar spurningar hvort hæstv. viðskrh. mundi vilja beita sér fyrir því að fundargerðir bankaráða ríkisbankanna kæmu hér til þm. með einum eða öðrum hætti.