16.11.1983
Efri deild: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í B-deild Alþingistíðinda. (735)

27. mál, niðurfelling stimpilgjalda af íbúðalánum

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Virðulegi forseti. Fjh.- og viðskn. hefur skoðað þetta mál og orðið sammála um að mæla með samþykkt þess. Það þekkja þetta mál allir. Þarna er reynt að koma til móts við húsbyggjendur og þá sem goldið hafa þess að lenda í verðbólgunni og verðtryggingu lána. Þó í litlu sé er þetta þó til bóta og nefndin mælir með samþykkt frv.