21.11.1983
Neðri deild: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 953 í B-deild Alþingistíðinda. (815)

45. mál, Norræni fjárfestingarbankinn

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ef hv. 3. þm. Reykv. flettir fjárlagafrv. sér hann að gert er ráð fyrir í því fjármagni til að standa að hlutafjáraukningu í Norræna fjárfestingabankanum. Hann spurði um frv. sem er hér síðar á dagskrá varðandi Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Það er Seðlabanki Íslands sem fer með þau mál og það fjármagn sem þar er um að ræða kemur úr Seðlabankanum og er þess vegna ekki tengt fjárlagafrv.