22.11.1983
Sameinað þing: 23. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í B-deild Alþingistíðinda. (846)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Birgir Ísl. Gunnarsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur tekið til athugunar kjörbréf Haralds Ólafssonar, 1. varaþm. B-listans í Reykjavíkurkjördæmi, en hann tekur sæti Ólafs Jóhannessonar, hv. 9. þm. Reykv., sem ekki getur sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda.

Kjörbréfanefnd gerir engar athugasemdir við kjörbréfið og leggur til að það verði samþykkt.