24.11.1983
Sameinað þing: 25. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1109 í B-deild Alþingistíðinda. (980)

Umræður utan dagskrár

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Það var ekki ætlan mín að efna hér til neinna umr., enda sjálfsagt ekki ástæða til þess þótt ég hafi vakið máls á þessu. En ég sé ástæðu til að þakka hæstv. sjútvrh. fyrir að hafa þegar gert þær varúðarráðstafanir sem hann hefur nú skýrt þingheimi frá.