24.11.1983
Sameinað þing: 25. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1149 í B-deild Alþingistíðinda. (997)
99. mál, jarðgöng um Ólafsfjarðarmúla
Helgi Seljan:
Herra forseti. Aðeins fáein orð. Fyrst vil ég lýsa stuðningi við þessa till. — þessa áherslu sem hlýtur að vera eðlileg í ljósi þeirra aðstæðna sem þarna eru. Ég bendi á það, eins og kom fram í máli síðasta hv. ræðumanns, að hér er um að ræða eitt af hinum svokölluðu „óvegaverkefnum“ eða Ó-vega verkefnum sem ný vegáætlun hefur tekið inn, þó með öðrum hætti sé en menn höfðu vænst, þ.e. að verkefnið var tekið inn sem hluti af vegáætlun og greiðist af hinu almenna vegafé í staðinn fyrir það — og þar tek ég undir með hv. þm. Svavari Gestssyni — að hér þurfti sérstaka fjáröflun, hér þurfti sérstaka fjárútvegun, sem varð því miður ekki, bæði til að flýta þessum verkum og eins til að skerða ekki hið almenna vegafé. Ég segi það hins vegar, að mér þykir einboðið að slík átök hljóti að kalla á það, ef menn vilja flýta þeim, ef menn vilja koma í veg fyrir slysin, að til þeirra sé veitt sérstöku fjármagni. Það er útilokað annað. Annars leggja menn ekki þá áherslu sem þeir þykjast leggja á þessa sérstöku vegi.
Ég gæti auðvitað, án þess að fara út í nokkurn samjöfnuð, bent á ýmsa vegi sem vissulega eru slysagildrur, þar sem hættur eru á ferðinni og oft hefur tæpt staðið. Við eystra þekkjum t.d. Kambanesskriðurnar, þar sem maður næstum að segja óttast það hvern vetrardag, þegar vont er yfirferðar og gaddur yfir, að slys verði, og einnig í asahlákum sumarsins. Það hefur oft tæpt staðið, þó blessunarlega hafi þar ekkert orðið að. Við hljótum að treysta á að verkefnum eins og vegagerð í Kambanesskriðum verði sinnt þegar í kjölfar þess að lokið verði við Ó-vegina. En við viljum að sjálfsögðu ekki draga úr því að þangað verði veitt fjármagni.
En ég endurtek að verkefni af þessu tagi, verkefni þar sem á svo miklu veltur m.a. um mannslíf, verður að fjármagna alveg sérstaklega og það má ekki taka það fé af því takmarkaða vegafé sem til skiptanna er hverju sinni — einnig og alveg sérstaklega vegna þess að þegar það er gert ganga verkefnin einfaldlega síðar og verr fram en vera ætti.