04.12.1984
Sameinað þing: 28. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1558 í B-deild Alþingistíðinda. (1032)
126. mál, skipun nýs útvarpsstjóra
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Mér þykir þessi fsp. gegna nokkurri furðu og verð satt að segja að lýsa furðu minni á því að hv. þm. skuli koma hér í ræðustól og halda framboðsræðu til hyllingar ákveðnum umsækjanda um starf sem þegar er búið að veita. Mér finnast þetta vera óþingleg vinnubrögð og held að þau eigi ekki heima hér á Alþingi.
Þegar vikið er að menntun umsækjenda í þessu tilviki spyr ég: Eru próf einhver algildur mælikvarði á menntun? Því fer víðs fjarri. Og án þess að ég ætli að fara að ræða hér um hæfni eða vanhæfni einstakra umsækjenda í þessu tilviki lýsi ég þeirri skoðun minni að hæstv. menntmrh. hafi í þessu tilviki skipað mjög hæfan mann til að gegna þessu starfi og mann sem hafði verulega reynslu af starfi við þá stofnun sem hér um ræðir. Það á ekki að líta fram hjá slíku.
Ég sé að hv. þm. Kristín Halldórsdóttir hristir höfuðið þegar ég segi þessi orð. Það vildi svo til að ég starfaði með þeim manni, sem skipaður var útvarpsstjóri, við þá stofnun. Og ég lýsi þeirri skoðun minni hér, fyrst umr. eru hér um þetta, og endurtek það sem ég sagði áðan, að hæstv. menntmrh. hafi skipað þann mann af þessum umsækjendum sem hæfastur var til að gegna útvarpsstjórastöðu að öllum öðrum umsækjendum ólöstuðum. En ég held að svona umr. eigi hreint ekki heima á hinu háa Alþingi.