04.12.1984
Sameinað þing: 28. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1559 í B-deild Alþingistíðinda. (1035)
126. mál, skipun nýs útvarpsstjóra
Árni Johnsen:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að taka undir orð hv. þm. Eiðs Guðnasonar. Mér fannst mjög ósmekklega fjallað hér um þá sem sóttu um stöðu útvarpsstjóra. Það er ástæðulaust, þegar búið er að afgreiða mál, að draga þannig í dilka og fjalla um einstaka menn. Ástæða væri þá til að fjalla um þá alla því að um mjög hæfa menn var að ræða. Það má endalaust meta menntun og reynslu. Benda má á að einn umsækjenda hefur starfað við útvarpsstöð sem hefur útvarpað til helmings mannkyns. Það má lengi um það metast. En í fyrsta lagi: þessi ræða var flutt á vitlausum tíma.