06.12.1984
Sameinað þing: 30. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1664 í B-deild Alþingistíðinda. (1150)

Umræður utan dagskrár

Svavar Gestsson:

Í ræðu sinni hér áðan, herra forseti, komst hæstv. utanrrh. þannig að orði, að ummæli sem hv. 5. þm. Austurl. hafði hér áðan nálguðust það að falla undir landráð. Ég hygg að það sé einsdæmi að landráðabrigsl af þessu tagi séu flutt af ráðh. úr þessum ræðustól. Ég get ekki látið hjá líða, áður en þessi umr. heldur lengra áfram, en mótmæla þessum svívirðingum hæstv. utanrrh. á alþm. sem bera fram mál sitt hér. Ég tel einnig að það væri eðlilegt að hæstv. forseti vítti ráðh. fyrir ummæli af þessu tagi.