10.12.1984
Efri deild: 26. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1698 í B-deild Alþingistíðinda. (1182)
191. mál, almannatryggingar
Karl Steinar Guðnason:
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. síðasta ræðumanni að mér kom á óvart þessi ræða heilbrmrh. Það er greinilegt, sem við reyndar vissum, að hann hefur hopað af hólmi. Gengið var þannig frá málum að sjúklingar voru skattlagðir svo hrikalega að engu tali tók, við mikil mótmæli þeirra sem fyrir urðu og stundu menn þungan undan því. Ég virði það vissulega við ráðh. að hann skuli hafa farið að kröfum okkar stjórnarandstæðinga og séð að sér að nokkru, en okkur þótti nauðsyn að minna á hvað skeð hefur í þessum málum. Það verða ekki aftur tekin þau óþægindi sem öldruðu fólki, sjúklingum og öryrkjum voru gerð í sumar.