12.12.1984
Efri deild: 28. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1819 í B-deild Alþingistíðinda. (1303)
187. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Herra forseti. Hv. fjh.- og viðskn. hefur rætt málið og orðið sammála um að mæla með samþykkt þess, en einstakir nm. áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. Eina brtt. flytur nefndin. Það er nánast lögfræðilegt og skattalegt tækniatriði og varðar frv. sem þegar hefur verið afgreitt út úr þessari hv. deild, þ.e. um aldursmark þeirra sem fá skattfrelsi til eins árs þegar þeir láta af vinnu. Ég held að það þurfi ekki fleiri orð um það að hafa.