17.12.1984
Efri deild: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2046 í B-deild Alþingistíðinda. (1476)

233. mál, verðjöfnunargjald af raforkusölu

Helgi Seljan:

Herra forseti. Hér er um að ræða mál sem er býsna þýðingarmikið hvernig fer um afgreiðslu á hér í þinginu. Hér sáum við að vísu fyrr á fundinum nál. frá iðnn. þar sem nm. skrifa undir með fyrirvara þannig að vissulega gátum við átt von á brtt. En ég sé að á þskj. 322 eru brtt. um öll grundvallaratriði þessa máls og ég tek því fyllilega undir það að mönnum gefist nokkurt ráðrúm til þess að líta á þetta. Að öðru leyti vil ég ekki að málið verði tafið á nokkurn hátt en að gefið verði nokkurt hlé til þess að átta sig á því hvað þessar till. fela í sér áður en menn greiða um þær atkv.