17.12.1984
Neðri deild: 26. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2076 í B-deild Alþingistíðinda. (1516)

133. mál, sala Landssmiðjunnar

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Aðeins sem svar við fsp. hv. 5. þm. Austurl., þá er frá því að segja að iðnaðarstefnan er í pólitískri endurskoðun og engin tök eða tími eru til þess nú að hefja umr. þar um.

En ég vil geta þess að það sem hann nefndi um stofnun allsherjareignarhaldsfyrirtækis á vegum ríkisins er meðal þeirra hugmynda sem ég hef töluverðan áhuga á.