17.12.1984
Neðri deild: 27. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2117 í B-deild Alþingistíðinda. (1591)

201. mál, tímabundið vörugjald

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. fjh.- og viðskn. um tímabundið vörugjald. N. hefur athugað frv. á fundum sínum og leggur til að það verði samþykkt. Einstakir nm. áskilja sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt. Guðrún Agnarsdóttir sat fundi n. og er samþykk afgreiðslu málsins.

Undir þetta nál. rita hv. þm. Páll Pétursson, Guðmundur Einarsson, Friðrik Sophusson, Svavar Gestsson, Halldór Blöndal, Þorsteinn Pálsson og Kjartan Jóhannsson með fyrirvara.