18.12.1984
Neðri deild: 31. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2196 í B-deild Alþingistíðinda. (1685)

244. mál, tollskrá

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um breytingu á lögum um tollskrá. Þetta er nál. fjh.- og viðskn. Nefndin hefur athugað frv. og mælir með samþykkt þess. Undir nál. skrifa fyrirvaralaust allir nm.