19.12.1984
Efri deild: 35. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2198 í B-deild Alþingistíðinda. (1697)

178. mál, atvinnuréttindi vélfræðinga

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Forseta hefur yfirsést hér 4. brtt. vegna óvenjulegrar uppröðunar. Það var varðandi 8. gr., um að 1. mgr. orðist svo sem þar segir. Ef enginn gerir athugasemdir þar við mun verða frestað til 3. umr. að greiða atkv. um þessa brtt. þar sem búið er að afgreiða málið nú til 3. umr. Ef enginn gerir athugasemdir við það mun það verða afgreitt þannig.