19.12.1984
Efri deild: 36. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2201 í B-deild Alþingistíðinda. (1710)

244. mál, tollskrá

Frsm. (Eiður Guðnason):

Virðulegi forseti. Þetta frv. kom að vísu mjög seint, en um það var enginn ágreiningur og algjör samstaða í fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar, svo sem raunar hefur áður verið hér á þingi þegar hliðstæð frv. hafa verið afgreidd. Hér er eingöngu um framlengingu að ræða á máli sem áður hefur verið rætt og enginn ágreiningur er um hér í þinginu. Því mælir nefndin einróma með samþykkt frv. eins og það nú liggur fyrir.