19.12.1984
Neðri deild: 34. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2253 í B-deild Alþingistíðinda. (1777)
179. mál, atvinnuréttindi skipstjórnarmanna
Frsm. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Þetta mál er nú á þskj. 394 og eins og kom fram þá er það vegna breytinga sem hafa orðið á frv. í Ed. Það er þó ekki nema ein efnisbreyting og er hún við 6. gr., þ.e. að við þennan hluta 6. gr.: Nám í verklegri sjómennsku, nýrri verktækni og notkun öryggis- og björgunarbúnaðar á námskeiðum eða í farskóla, sem Slysavarnafélag Íslands eða samtök sjómanna og útgerðarmanna beita sér fyrir, má meta sem þrefaldan siglingartíma“ kemur viðbótin: Þó aldrei meira en einn mánuð.
Að öðru leyti er um orðalagsbreytingar að ræða. Þessi breyting var gerð í fullu samráði við formann öryggismálanefndar, hv. þm. Pétur Sigurðsson og við a.m.k. formann samgn. þessarar deildar.
Það eru enn fremur breytingar í sambandi við atvinnumál vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum. Þessar breytingar eru eingöngu orðalagsbreytingar og samgn. Nd. er sammála þeim.