20.12.1984
Neðri deild: 36. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2320 í B-deild Alþingistíðinda. (1816)

Þingfrestun

Forseti (Ingvar Gíslason):

Þar sem þetta er að öllum líkindum síðasti fundur þessarar hv. deildar fyrir jólaleyfi vil ég þakka hv. þdm. ágætt samstarf við mig þá mánuði sem þingið hefur starfað. Ég vil einnig þakka skrifstofustjóra og starfsliði Alþingis mikilvægt starf í þá u þingsins og gott samstarf við mig á allan hátt.

Ég óska þdm. og starfsmönnum Alþingis gleðilegra jóla og farsæls nýárs og þeim sem eiga um langan veg að fara til heimila sinna óska ég sérstaklega fararheilla.