20.12.1984
Efri deild: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2321 í B-deild Alþingistíðinda. (1820)

155. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég vil staðfesta það sem hv. formaður fjh.- og viðskn., 4. þm. Norðurl. v., sagði hér um það mál sem er til afgreiðslu. Ég vil nota þetta tækifæri, á síðasta fundi fyrir jólahelgina, til að þakka fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar og kannske ekki síður forseta fyrir góða samvinnu við að koma málum fram, sumum þeirra með litlum fyrirvara, og ég vil óska bæði nm. og öðrum dm. gleðilegrar jólahátíðar.