20.12.1984
Efri deild: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2321 í B-deild Alþingistíðinda. (1823)

Þingfrestun

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Fyrir hönd okkar þdm. vil ég þakka hlý orð og óskir okkur og okkar fjölskyldum til handa. Ég vil fyrir okkar hönd þakka forseta deildarinnar röggsama og réttláta fundarstjórn í hvívetna og færa henni og hennar fjölskyldu okkar bestu jóla- og nýársóskir um leið og ég tek undir þakkir hennar til skrifstofustjóra og starfsmanna þingsins. Ég vil biðja hv. þm. að staðfesta þessar óskir og þakkir til forseta deildarinnar með því að rísa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.]