20.12.1984
Efri deild: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2321 í B-deild Alþingistíðinda. (1824)

Þingfrestun

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Ég vil þakka hv. 5. landsk. þm. fyrir hlý orð og góðar óskir í minn garð og fjölskyldu minnar og hv. þdm. fyrir að taka undir þær óskir. Ég endurtek mínar innilegustu jóla- og nýársóskir til hv. þdm. og starfsfólks Alþingis og segi fundinum slitið.