20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2330 í B-deild Alþingistíðinda. (1836)

238. mál, frestun á fundum Alþingis

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég hef lagt fram till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis skv. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillgr. er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 20. des. 1984 eða síðar, ef henta þykir, enda verði það kvatt saman á ný eigi síðar en 28. jan. 1985.“

Að venju geri ég ekki till. um að þáltill. þessi fari til nefndar.