20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2330 í B-deild Alþingistíðinda. (1838)

238. mál, frestun á fundum Alþingis

Utanrrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Þegar ég lýsti því yfir að búast mætti við ákvörðun varðandi byggingu ratsjárstöðva á Vestfjörðum og Norðausturlandi í byrjun næsta árs, þá átti ég við að það yrði væntanlega á fyrsta ársfjórðungi. Ætla má því að þau mál fái mjög vandaða meðferð og að þar verði allt upplýst sem máli skiptir, m.a. það sem þm. óska eftir að vita.