20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2333 í B-deild Alþingistíðinda. (1844)

238. mál, frestun á fundum Alþingis

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Á því þingi sem nú stendur yfir hefur það aftur og aftur komið fram að talsmenn stjórnarandstöðuflokkanna, ég hygg allra, hafa verið tilbúnir til að taka þátt í umr. um lausn á þeim efnahagsvanda sem blasir við. Ég skil hins vegar forsrh. svo að hann hafi engan áhuga á að ræða þessi mál við minni hl. hér á Alþingi, stjórnarandstöðuflokkana. Og fyrst hann kýs að hafa hlutina svo, þá er best að hann beri sjálfur sinn eigin kross.