20.12.1984
Sameinað þing: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2399 í B-deild Alþingistíðinda. (1881)

Þingfrestun

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf: „Forseti Íslands gerir kunnugt: Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 107. löggjafarþings, frá 20. des. 1984 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 28. jan. 1985.

Gjört í Reykjavík, 18. desember 1984.

Vigdís Finnbogadóttir.

Steingrímur Hermannsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Skv, þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum þessa Alþingis, 107. löggjafarþings, er frestað frá 21. desember 1984 og verður þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 28. jan. 1985.

Leyfi ég mér að óska hv. alþm. og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, gleðilegra jóla og farsæls nýárs.