29.01.1985
Sameinað þing: 41. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2426 í B-deild Alþingistíðinda. (1933)

62. mál, mat heimilisstarfa til starfsreynslu

Flm. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka þeim hv. þm. sem hér hafa talað og tekið undir efni þessarar till. Ég þakka hæstv. félmrh. sérstaklega fyrir undirtektir hans. Það gleður mig að heyra að hann skuli setja heimilisstörf í hæsta flokk þegar verið er að meta störf. Þar eigum við hæstv. félmrh. greinilega samleið.

Ég vil að lokum láta í ljós þá ósk mína að hv. allshn. hraði afgreiðslu þessarar till. þannig að hún megi koma til framkvæmda áður en mjög langt um líður.