12.02.1985
Sameinað þing: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2813 í B-deild Alþingistíðinda. (2272)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Alþingi 12. febr. 1985.

Eiður Guðnason, formaður þingflokks Alþfl., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem Karvel Pálmason, 3. þm. Vestf., er nú í sjúkrahúsi og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Vestfjarðakjördæmi, Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum hans.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Sighvatur Björgvinsson hefur áður setið á Alþingi á þessu kjörtímabili. Býð ég hann velkominn til starfa.