12.02.1985
Sameinað þing: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2814 í B-deild Alþingistíðinda. (2274)

Um þingsköp

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Það er rétt að langt er um liðið síðan fsp. hv. þm. var fram borin. En hún var að ýmsu leyti allflókin í vinnslu. Nokkrir þættir hennar eru komnir en það hefur kostað mikla vinnu að finna svar við sumum liðunum og sumum þáttunum var hreinlega ekki unnt að svara af tæknilegum ástæðum og vegna starfs skólanna þegar hún var fram borin.

Ég hef beðið starfsmenn rn. að hraða því að fá þessar úrlausnir. Mikill hluti af efninu er kominn en ekki allt og ef það dregst einhverja daga eða við skulum segja fram yfir þessa viku að það fáist, þá mun ég skila því sem komið er.