12.02.1985
Sameinað þing: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2837 í B-deild Alþingistíðinda. (2306)

282. mál, hlustunarskilyrði hljóðvarps

Fyrirspyrjandi (Siggeir Björnsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þær upplýsingar sem hún gaf hér, svo langt sem þær náðu. En einkum og sér í lagi vil ég þakka hennar jákvæðu ummæli um þetta mál. Ég mun að sjálfsögðu fylgjast með gerðum rn. með því að hafa samband við rn. seinna.