13.02.1985
Efri deild: 43. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2887 í B-deild Alþingistíðinda. (2374)
291. mál, umferðarlög
Haraldur Ólafsson:
Virðulegi forseti. Ég vil lýsa stuðningi mínum við þetta frv. og þarf ekki að hafa mörg orð þar um. Ég hef nokkra hríð verið fylgjandi því að tekin væri upp regla um að ekið væri með ljósum allan ársins hring. Þó að oft sé bjart hér á Íslandi eru á mörgum stöðum þau akstursskilyrði sem gera ljósanotkun nauðsynlega bæði vegna ryks og þoku. Víða er landslagi þannig háttað að maður sér ljósglampa áður en maður sér ökutækið sjálft. Ég tel engan vafa á því að það mundi auka mikið öryggi á vegum landsins ef ekið væri með ljósum allan ársins hring og öll ökutæki sem á ferð eru, hvort sem það eru bílar, reiðhjól, mótorhjól, dráttarvélar eða vinnuvélar, væru með fullum ljósum.
Ég vil einkum og sér í lagi taka undir með hv. 3. þm. Vesturl. varðandi síðustu mgr. í 3. gr. Ég held að þar þurfi að taka til orða af meiri nákvæmni en gert er.
Við, sem búum hér í Reykjavík, þekkjum vanda umferðarinnar þar sem þúsundir skólabarna eru á ferli í svartasta skammdeginu. Oft og tíðum hagar svo til að börnin verða að fara yfir fjölfarnar umferðargötur þar sem slysagildrur eru á öðru hverju götuhorni. Það er að vísu ekki hlutverk Alþingis að fjalla um það mál út af fyrir sig þó að hugsanlegt sé að einhverjar almennar reglur yrðu settar um gangbrautir í grennd við skóla og í grennd við stoppistöðvar strætisvagna sem skólabörn nota mjög mikið. Ég veit það af reynslu hér úr Vesturbænum að þar þurfa börn, sem koma t.d. sunnan úr Skerjafirði og eru að fara annaðhvort í Melaskóla eða síðan unglingarnir í Hagaskóla, að fara yfir Suðurgötuna með tvöfaldri akrein og gífurlegri umferð einmitt á þeim tíma sem börnin eru á leið í skólann og heim úr skóla. Ég vil aðeins undirstrika þetta og að allt, sem unnt er að gera til að tryggja öryggi barna og unglinga í umferðinni, er af hinu góða. Ég vil beina því til réttra aðila hvort ekki væri unnt að fá til stuðnings bæjaryfirvöldum á hverjum stað einhvers konar almennar reglur um frágang á gangbrautum og stoppistöðvum í grennd við skóla sem skólabörn nota mikið.