14.02.1985
Sameinað þing: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2918 í B-deild Alþingistíðinda. (2400)

Drengskaparheit unnið

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það er upplýst, sem átti að vera vitað, að Brynjólfur Sveinbergsson hefur setið áður á Alþingi og var því ekki nauðsynlegt að vinna nú drengskaparheit að stjórnarskránni. En það hefur ekkert slys skeð.

Óli Þ. Guðbjartsson hefur unnið drengskaparheit að stjórnarskránni. Ég býð Óla Þ. Guðbjartsson og Brynjólf Sveinbergsson velkomna til starfa á Alþingi.