14.02.1985
Sameinað þing: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2924 í B-deild Alþingistíðinda. (2426)

271. mál, varnir gegn fisksjúkdómum

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka hæstv. ráðherrum fyrir upplýsingarnar og taka einlæglega undir orð hv. síðasta ræðumanns, sem ég veit að er mjög fróður um þessi mál, og leggja áherslu á að við þurfum að sýna enn meiri aðgát og efla varnir gegn þessum alvarlega sjúkdómi sem getur haft óbætanlegar afleiðingar fyrir okkur.