19.02.1985
Sameinað þing: 50. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3029 í B-deild Alþingistíðinda. (2498)
225. mál, staðfesting Flórens-sáttmála
Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. svör hans, en í raun er ég alveg jafn nær um hvenær á að framkvæma þennan vilja Alþingis. Það liggur fyrir að málin hafa verið samþykki hvor tveggja á s.l. þingi og vilji Alþingis er að þau nái fram að ganga. En ég er alveg jafn nær eftir svar hæstv. utanrrh. hvenær það verður. Fjmrn. bað um frest á þessu í fyrra fram að 1. jan. og nú heyri ég að í einstökum tilfellum hefur verið veitt undanþága. Málið er í athugun í fjmrn. E.t.v. gæti hæstv. fjmrh. frætt okkur um það hvenær væri að vænta framkvæmdar málsins?