20.02.1985
Neðri deild: 43. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3074 í B-deild Alþingistíðinda. (2560)
111. mál, áfengislög
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Ég vil svara fsp. hv. 3. þm. Reykv. Að sjálfsögðu voru tillögur þeirrar nefndar, sem hann ræddi um, lagðar fram í ríkisstj. og ræddar. Ákveðið var að biðja embættismenn í þeim ýmsu ráðuneytum sem um þessi mál fjalla að fara yfir þær og segja álit sitt. Sá hópur skiptist. Kom ítarlegt álit frá einum þeirra embættismanna sem dró mjög í efa ágæti sumra þessara tillagna. Þær eru nú enn til meðferðar hjá viðkomandi rn.
Ég tek undir það með hv. þm. að nauðsynlegt er að setja heilsteypta löggjöf um áfengismálin. Og margt í þessum tillögum er gott og sannarlega þess virði að á það verði látið reyna. Ég verð hins vegar að lýsa þeirri persónulegu skoðun minni að ég held að sá árangur, sem að er stefnt, náist ekki með víðtækum boðum og bönnum eins opið og íslenskt þjóðfélag er orðið. Það er mín persónulega skoðun. Ég held að fara þurfi þær leiðir, sem m.a. í þessum tillögum eru nefndar ásamt öðru, að auka mjög fræðslu og kynningu á skaðsemi áfengis.
Ég vil einnig láta það koma fram að ég held að mjög sé brýnt að herða ákaflega mikið lög og allt eftirlit með fíkniefnanotkun. Leggja ber mikið fjármagn til slíks eftirlits til að draga úr fíkniefnanotkun. Það held ég að sé jafnvel enn brýnna mál og á því máli þarf að taka. Um það var fjallað í síðustu ríkisstj. en mér virðist því miður að menn hafi ekki náð þeim tökum á þeirri löggæslu og því eftirliti sem nauðsynlegt er og þarf því að taka það mál upp að nýju. Það sem hv. þm. sagði um bjórinn er einkennandi fyrir fyrrv. fréttamenn eins og þeir tala. Ég vísa því heim til föðurhúsanna.
Ég tek undir sumt sem hv. þm. Garðar Sigurðsson sagði hér áðan. Ég held að þetta bjórlíki, eða hvað það er kallað, sé hinn mesti skaðvaldur. Hins vegar veit ég ekki betur en að um þetta hafi verið fjallað af saksóknara og sú niðurstaða orðið að ekki væri samkvæmt lögum unnt að stöðva þetta. Staðreyndin mun víst vera sú að hv. þm. sem öðrum er heimilt að blanda eða þynna út brennivínið sitt með nokkurn veginn hverju sem honum sýnist, hvort sem það er appelsín, kók eða pilsner. Og það mun víst vera ástæðan eftir því sem mér skilst. (GGS: Ég stend þó ekki í að selja það.) Nei, þú stendur ekki í því að selja það. En það standa ýmsir í að selja útþynnt brennivín með appelsín og kók. Og þá er spurningin hver sé munurinn. Ég er ekki fræðimaður í þessu en mér er sagt af manni, sem þekkir þetta mjög vel, að þetta sull sé allt annað en bjór. Í því eru m.a. brennd vín, sem eru ekki bjór. Því er ekki hægt að flokka það undir bjór þó að þessi brenndu vín séu þynnt út með pilsner. En ég tek undir það með hv. þm. að ég held að þetta sé hinn mesti skaðvaldur. Og reyndar er ég þeirrar skoðunar að þetta sé miklu, miklu verra en bjór sem ekki er með brenndum vínum.