20.02.1985
Neðri deild: 43. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3091 í B-deild Alþingistíðinda. (2574)
279. mál, ráðstafanir í húsnæðismálum
Flm. (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Það þarf að sjálfsögðu ekki að endurtaka það til skýringar fyrir hv. síðasta ræðumann, Kristínu Halldórsdóttur, að einmitt í þessu frv. er gert ráð fyrir að sá háttur verði upp tekinn sem hv. þm. Kvennalista hafa nú flutt þáltill. um, þ.e. að framreikningur verðbóta, vaxta og afborgana af húsnæðisstjórnarlánum skuli miðast við þá af vísitölunum tveimur, kaupgjaldsvísitölu eða lánskjaravísitölu, sem lægri er. Ætti það ekki að misskiljast. Þannig hyggjumst við flm. einmitt tryggja að greiðslubyrði þyngist ekki miðað við kaupgjald eða unna vinnustund eða hvað sem við nú kjósum að kalla það.
Herra forseti. Það er ánægjulegt til þess að vitað að hæstv. félmrh. er að læra af reynslunni. Það eru sannarlega gleðileg tíðindi að hann ætlar nú ekki að lofa meiru en hann hyggst geta staðið við og mun því stöðva allar úthlutanir lána frá Húsnæðisstofnun þangað til hann hefur fengið lánsfjáráætlun samþykkta og tryggt þannig tekjuöflunina. Þarna er hann vissulega að læra því það sem mistekist hefur hingað til er að sjá fyrir fjármagni til að standa undir þeim loforðum sem gefin hafa verið, eins og hér hefur iðulega komið fram.
Þá er einnig sérstakt gleðiefni, herra forseti, að sjá þm. Sjálfstfl. mætta hingað í þingsalinn. Það vakti athygli mína að um hríð var enginn hv. þm. Sjálfstfl. í salnum og þaðan af síður var hv. varahúsnæðismálaráðherra Halldór Blöndal hér. Hann hefur stundum látið sig húsnæðismál varða, en er illa fjarri góðu gamni nú. Það er mjög ánægjulegt, eins og ég sagði, að hafa hér fulltrúa Sjálfstfl., ekki síst hv. 1. þm. Suðurl. og formann flokksins, því að ástæða væri til að spyrja hann, úr því að hann er hér mættur, hvernig Sjálfstfl. hyggst nálgast það markmið sitt, þá stefnu sína sem hann lagði fram fyrir síðustu kosningar, að allir eignuðust húsnæði. Eign fyrir alla, hét það, og 80% lán til allra þeirra sem eru að eignast húsnæði í fyrsta sinn. Ég held að ég fari orðrétt með þetta upp úr kosningastefnuskrá þeirra sjálfstæðismanna.
Herra forseti. Það er auðvitað ekki til fyrirmyndar að vekja athygli á því að menn séu að laumast burt úr þingsalnum á fundartíma, en kallað var í mig í áðan í símann vegna þess að sami einstaklingur var hvað eftir annað búinn að reyna að ná við mig sambandi og ég leyfði mér að laumast út örstutta stund. Og viti menn! Sá einstaklingur var ungur maður norður á Akureyri að rekja fyrir mér raunir sínar. Hann keypti sína fyrstu íbúð og sá kaupsamningur var móttekinn af Húsnæðisstofnun 4. júlí 1984. Þessi ungi maður, sem var þarna að eignast sitt fyrsta húsnæði, hefur ekki fengið eina einustu krónu enn þá af þeim 80% sem hv. sjálfstæðismenn ætluðu nú að lána honum skv. kosningaloforðum. Hann bíður sem sagt enn þá, þegar komið er þetta fram á árið 1985, eftir sínum fyrstu krónum frá Húsnæðisstofnun. Skv. upplýsingum þaðan var honum núna í vikunni sagt að hann þyrfti ekki að eiga von á fyrirgreiðslu þaðan í bráð eins og staðan væri. Ég tek þetta dæmi hér til að minna fólk á að við erum að tala um örlög lifandi fólks sem á mikið undir því að hv. Alþingi bregðist þeim ekki í þessum efnum. Það eru þúsundir, það eru ekki hundruð, það eru þúsundir, sem eiga nú í hliðstæðum erfiðleikum og sá ungi maður sem ég tók dæmi af.
Það sem veldur því að Sjálfstfl. og Framsfl. eru víðs fjarri því að standa að nokkru við kosningaloforð sín í húsnæðismálum er aumingjaskapur þessara flokka þegar að því kemur að afla tekna. Það er það sem sker úr í þessu efni. Og þó að hæstv. félmrh. hafi, eins og þeir vita sem fylgst hafa með honum á þessum þunna ís undanfarna mánuði, haft vissa tilburði í þá átt að reyna að afla tekna inn í húsnæðiskerfið hefur hann jafnóðum verið barinn niður með það af samstarfsmönnum sínum, einkum og sér í lagi Sjálfstfl. sem má aldrei heyra það nefnt að nokkurs staðar sér reynt að afla fjármagns í þetta kerfi til þess að það geti gengið. Það er sem sagt aðferð Sjálfstfl. við að framkvæma stefnu sína, eign fyrir alla, að berja niður allar tilraunir hæstv. félmrh. sem af veikum burðum er að reyna að afla tekna til húsnæðismála og hefur gert sér grein fyrir því að það er forsenda þess að nokkuð sé hægt að gera í þessum efnum. Þeirri feigðarstefnu er hins vegar fylgt þessa dagana að láta byggingarsjóðina taka lán og aftur lán og enn þá lán og vísa þeim á lánamarkaðinn, sbr. afgreiðslu lánsfjáráætlunar sem öllu máli á að skipta í húsnæðismálum. Það eru ekki fjárlög, það eru ekki tekjustofnar, ekki framlög, heldur lán sem eiga vandann að leysa. Og menn vita á hvaða kjörum þau lán bjóðast þessa dagana, hvernig kaupin gerast á þessari eyri frjálshyggjunnar og vaxtaokursins. Það eru 4, 6, 8, 9% vextir ofan á verðtryggingu sem byggingarsjóðnum er ætlað að greiða af þeim skammtíma- eða langtímalánum sem hann er að taka og endurlánar síðan á miklu lægri vöxtum eins og allir vita. Þetta er aðferð hv. stjórnarsinna til að byggja upp byggingarsjóðina og húsnæðiskerfið.
Ég þarf ekki að hafa um þetta fleiri orð. Það vekur athygli mína fjarvera og þögn Sjálfstfl. og það að þeir skuli ekkert hafa fram að færa við þessa umr. Það vekur svo sannarlega athygli mína, herra forseti.