23.10.1984
Sameinað þing: 9. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 430 í B-deild Alþingistíðinda. (259)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það þykir rétt að vekja athygli á því að nú eru sex menn á mælendaskrá í þessari utandagskrárumræðu. Það hefur ekki verið ætlunin að hafa kvöldfund, taka okkur matarhlé og halda áfram í kvöld, heldur að freista þess að ljúka þessari umr. innan hæfilegra marka þannig að komist verði hjá kvöldfundi.