21.02.1985
Sameinað þing: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3140 í B-deild Alþingistíðinda. (2622)
25. mál, tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Það er ekki annað að gera en að halda uppi samræðum. Við skiptumst á um það þeir sjö þm. sem eru í salnum.
En varðandi það sem hv. síðasti ræðumaður sagði langar mig að gera tvær aths., án þess að ég vilji þar með láta í ljós skoðun mína á því til eða frá hvort ég vil leggja niður tæknideild Húsnæðisstofnunar. Hv. 4. þm. Norðurl. e. minntist á að tæknideildin þjónustaði stjórn verkamannabústaða við byggingu þeirra.
Það hefur komið í ljós upp á síðkastið að verkamannabústaðir eru orðnir mun dýrari byggingar en t.d. íbúðir þær sem Byggung hefur látið byggja. Öllum er ljóst að hugmyndin að baki byggingu verkamannabústaða var sú að gefa tekjulágu fólki kost á viðráðanlegu húsnæði. Það mætti spyrja hvort tæknideildin hafi þarna sinnt því verkefni, t.d. að sjá um að halda niðri byggingarkostnaði í þessa veru í samræmi við það.
Annað hlutverk hygg ég að Húsnæðisstofnun hafi að parti á sínum snærum, þ.e. að annast mat á endursöluíbúðum innan verkamannabústaðakerfisins. Ég held að ég ýki ekki þó að ég leyfi mér að halda því fram að oftlega dregst mjög á langinn að íbúðir séu metnar eftir að úr þeim hefur verið flutt. Þetta tefur á allan hátt fyrir því að fólk fái íbúðir og hefur auðvitað kostnað í för með sér fyrir alla aðila. Mér þætti fróðlegt að heyra, vegna þess að hv. 4. þm. Norðurl. e. er stjórnarmaður Húsnæðisstofnunar, hvort ekki sé ástæða til að ýta eitthvað við þessari starfsemi a.m.k. Ég held að til þess sé nokkur ástæða. Ég er ekki viss um að þessum tveimur þáttum starfseminnar sé sinnt sem skyldi.
En vegna þeirra mála sem hér hafa verið á dagskrá eitt af öðru er nú svo komið að manni sýnist að það leiði af sjálfu sér að velflestar opinberar stofnanir verði lagðar niður innan tíðar. Það er svo komið að menn fá ekki greidd laun sem eru á nokkurn máta lífvænleg. Það er því kannske til mikils ætlast að starfsmenn þessara stofnana vinni störf sín af lífi og sál ef þeir þurfa að eyða hálfum vinnudeginum í að eltast við bankastjóra til þess að eiga fyrir matarreikningnum. Mér sýnist því að núv. ríkisstj. leysi till. hv. flm. sjálf, þessar stofnanir lognist allar út af hvort sem er eins og þessi þingfundur virðist vera á góðum vegi með að gera.