26.02.1985
Sameinað þing: 53. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3192 í B-deild Alþingistíðinda. (2663)

261. mál, lán frá Húsnæðisstofnun ríkisins

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Við fsp. hv. 2. þm. Austurl. vil ég gefa þetta svar:

„1. Hvenær má vænta afgreiðslu G-lána — lána til eldri íbúða — til þeirra sem keyptu íbúðir í apríl-júní á s.l. ári?“

Svar: Lán til þeirra sem lögðu inn umsóknir til kaupa á eldri íbúðum frá 1. apríl til júníloka á s.l. ári verða til afgreiðslu 5. mars n.k. í veðdeild Landsbankans.

„2. Hvenær verður þriðji hluti nýbyggingarlána afgreiddur til þeirra sem fengu fyrsta hluta í desember 1983?“

Svar: Þeir sem fengu fyrsta hluta nýbyggingarláns í desember 1983 fá þriðja hlutann afgreiddan í veðdeild Landsbankans 5. mars n.k.