26.02.1985
Sameinað þing: 53. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3215 í B-deild Alþingistíðinda. (2691)

260. mál, útlán banka og sparisjóða

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég svaraði þeim spurningum fyrr á fundinum sem hv. 2. landsk. þm. bar upp nú. Ég vísaði til þess að rn. hefði óskað eftir svörum frá bönkunum, þetta væru þau svör og ég hefði ekkert við þau að athuga. Í öðru lagi svaraði ég þm. og sagði: Þegar bankalöggjöfin verður hér til umr. mun ég tjá mig um þetta atriði eins og önnur þau atriði sem um verður fjallað þegar málið verður hér á dagskrá.