12.03.1985
Sameinað þing: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3470 í B-deild Alþingistíðinda. (2798)

255. mál, auglýsingar banka og sparisjóða

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Varðandi fsp. hv. þm. um verðbréfamarkaðinn er því til að svara að nú starfar nefnd að því að setja reglur um verðbréfamarkaðinn. Ég vonast til þess að ekki líði margar vikur þar til hún hefur lokið sínum störfum og lagt fyrir ríkisstj. þær tillögur sem hún gerir í þeim efnum. Nefndin starfar undir formennsku Sigurgeirs Jónssonar aðstoðarbankastjóra og hefur verið gefin út fréttatilkynning af hálfu rn. um það fyrir einum þremur vikum.