12.03.1985
Sameinað þing: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3476 í B-deild Alþingistíðinda. (2809)

302. mál, framkvæmd iðnaðarstefnu

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Fsp. er fljótsvarað. Samstarfsnefnd um framkvæmd iðnaðarstefnu hefur ekki starfað í tíð núverandi ríkisstjórnar. Þeim hlutverkum sem henni voru ætluð hefur verið sinnt rækilega með öðrum hætti.