12.03.1985
Sameinað þing: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3499 í B-deild Alþingistíðinda. (2840)

332. mál, gjaldmiðlar í erlendum lánum fyrirtækja

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Vegna þess síðasta sem hv. þm. spurði um er mér ekki kunnugt um það misræmi eða í hverju það liggur ef svo er. Varðandi hitt atriðið, að gera þetta frjálst, þá var ég búinn að svara því strax í upphafi, endurtaka það, að það er unnið að því að koma þessum málum yfir til viðskiptabankana og þá í leiðinni að þeir geti tekið lán í þeim gjaldmiðli sem viðkomandi viðskiptaaðili óskar að taka.