12.03.1985
Sameinað þing: 58. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3514 í B-deild Alþingistíðinda. (2856)

183. mál, svört atvinnustarfsemi

Flm. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég tala hér fyrir till. til þál. á þskj. 199 um skipan nefndar til þess að gera úttekt á „svartri atvinnustarfsemi“ og tillögur til úrbóta. Till. hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að skipa fimm manna nefnd til að gera úttekt á „svartri atvinnustarfsemi“, þ.e. atvinnustarfsemi þar sem m.a. er komist hjá að greiða lögboðin opinber gjöld, og benda á leiðir til úrbóta.

Forsrh. skipi formann nefndarinnar.

Nefndin skal skila tillögum sínum fyrir árslok 1985.“ Í grg. segir m.a.:

„Svarta atvinnustarfsemi“ á Íslandi má nánast skilgreina á tvo vegu:

1. Skattsvik þar sem fjármunum er velt án þess að staðin séu skil á opinberum gjöldum eða staðið við aðrar þær reglukvaðir sem almennur atvinnurekstur verður að hlíta.

2. Starfsemi án tilskilinna leyfa og réttinda.

Hér skal ekki fullyrt hversu stórt og víðtækt þetta vandamál er, nm það liggja ekki fyrir upplýsingar. Það er hins vegar mat þeirra er um hafa fjallað að umfang þess sé mikið. Hér er um að ræða óþolandi mismunun milli einstaklinga og fyrirtækja. „Svört atvinnustarfsemi“ raskar grundvelli samkeppni milli þeirra sem hana stunda og þeirra sem reka fyrirtæki sín eftir settum reglum og standa skil á sköttum og skyldum. Fyrirsvarsmenn þeirra fyrirtækja krefjast þess að samkeppnisaðstaðan verði í þessu efni jöfnuð.

Iðnþing Íslendinga hefur á undanförnum árum fjallað ítarlega um þessa starfsemi og leitað leiða til að sporna gegn þessari spillingu. Það er ástæða að fagna því alveg sérstaklega að Landssamband iðnaðarmanna hefur lýst sig reiðubúið til samstarfs ef verða mætti til að finna orsök þessa vanda. Á 40. Iðnþingi árið 1983 var eftirfarandi tillaga samþykkt:

„Koma þarf á samstarfi ríkisvaldsins og samtaka fyrirtækja. sem rísa undir því nafni, til þess að uppræta svarta atvinnustarfsemi, enda eiga þessir aðilar sameiginlegra hagsmuna að gæta í þessum málum. Landssamband iðnaðarmanna vill leggja sitt af mörkum til að koma slíku samstarfi á og óskar eindregið eftir því að ríkisvaldið hafi forgöngu um þá samvinnu.“

Í stefnuskrá sem samþykkt var á 39. Iðnþingi segir m.a.:

„Ríkisvaldið, sveitarfélög og fleiri aðilar, sem reka alls konar þjónustu, t.d. viðhalds- og viðgerðarþjónustu, í tengslum við starfrækslu ýmissa stofnana sinna og fyrirtækja, ættu að meta hagkvæmni þessara eigin þjónustudeilda út frá því að skatta og skyldur bæri að greiða af þeim. Af þessari „eiginþjónustu“ er lítið sem ekkert greitt í skatta, t.d. í söluskatt. Sé þessi þjónusta hins vegar veitt af almennum fyrirtækjum, sem sérhæfa sig í slíkri þjónustu, er hún margskattlögð. Hér má því segja að fjölmargir aðilar, þar á meðal úr hópi opinberra stofnana, leggi stund á nokkurs konar svarta atvinnustarfsemi.

Iðnlöggjöfin er m.a. sett til þess að tryggja atvinnuréttindi iðnaðarmanna í löggiltum iðngreinum. Atvinnuréttindi fjölmargra annarra stétta eru nú á tímum lögvernduð og þeim lagaákvæðum virðist fylgt eftir af ríkisvaldinu. Þess er krafist að iðnréttindi njóti sama réttar í þessu efni en verði ekki hornreka í kerfinu.

Iðnaðarlögin eru ekki síður sett í þeim tilgangi að gæta hagsmuna neytenda og tryggja þeim góða og faglega þjónustu og/eða framleiðsluvörur af hendi þeirra sem reka löggiltar iðngreinar. Þess er krafist að ríkisvaldið takmarki starfsemi ófaglærðra á hefðbundnu starfssviði löggiltra iðngreina, enda telst slíkt liður í almennri neytendavernd. Þeir aðilar, sem lögum samkvæmt ber að fylgjast með framkvæmd iðnlöggjafarinnar, þurfa að taka á sig rögg og fara með iðnlagabrot í samræmi við það sem lög bjóða.“

Á það er skylt að benda að svört atvinnustarfsemi er ekki aðeins bundin íslenskum iðnaði, hún þrífst í ýmsum atvinnugreinum. Það eru ekki aðeins atvinnurekendur sem slíka iðju stunda. Það er algengt að launþegar, sem margir stunda aðalstarf sitt hjá fyrirtækjum sem bera þær atvinnurekstrarlegu kvaðir sem ríkisvaldið leggur þeim á herðar, hverfi að reglubundnum vinnutíma loknum til starfa við „svarta atvinnustarfsemi“ í beinni samkeppni við aðalvinnuveitanda sinn.

Á það er einnig rétt að benda að ýmis starfsemi á sér stað hér á landi með innflutningi, sölu og dreifingu ásamt framleiðslu á ýmiss konar varningi án þess að viðkomandi hafi aflað sér nauðsynlegra leyfa. Sú starfsemi er einnig svört. Þessir aðilar hafa oft ekki fasta starfsaðstöðu heldur koma og fara á markaðinn eftir því hve hagstæður hann er hverju sinni. Þessir leyfislausu aðilar veita því hinum, sem sinna þjónustu við almenning, samkeppni þegar markaðurinn er hagstæður en hverfa þegar kemur að því að uppfylla þarf skyldurnar.

Það er alveg sérstök ástæða að skora á stjórnvöld og almenning að berjast hart gegn þessari atvinnustarfsemi, sem hér er kölluð svört, í hverri þeirri mynd sem hún kann að birtast. Fólk þarf að átta sig á því að hafna þjónustu þessara aðila og stjórnvöld að herða aðgerðir gegn þessari starfsemi.

Þegar talað er um svarta atvinnustarsemi detta mönnum fyrst í hug undanbrögð frá því að skila innheimtum söluskatti eða alls ekki að innheimta hann. M.a. af þessu hefur söluskattsformið ekki verið talin góð skattheimtuaðferð ef svo mætti segja. Áætlaðar tekjur ríkissjóðs af innheimtum söluskatti fyrir árið 1985 eru um 9 milljarðar 835 millj. kr. Ef við lítum á það hvað söluskatturinn er mikilvægur tekjustofn fyrir ríkissjóð og hversu formið er ódýrt í innheimtu er það umhugsunarefni hvað lítið hefur verið gert til að lagfæra þá galla sem komið hafa í ljós þannig að skilvísin væri sem best. Hér þurfa hinir hæfustu menn að fjalla um. Ég held að ástæða sé til að íhuga þetta mál af gaumgæfni áður en breytt er um form. Spurningin er í mínum huga hvort ekki sé skynsamlegra hér að bæta en breyta. Það er ekki hægt að fullyrða að ósanngjörn og órökræn skattheimta sé orsökin. Ég held einmitt að svo sé ekki.

Herra forseti. Ég legg áherslu á að sú nefnd sem till. gerir ráð fyrir að skipuð verði skoði bæði orsakir og afleiðingar þessarar starfsemi og leggi fram tillögur þar um. Tilgangurinn með þessum tillöguflutningi er að vekja athygli á og umræður um þetta margslungna vandamál og leita leiða til að brjótast úr þeim vítahring spillingar sem viðgengist hefur á þessu sviði. Þá neðanjarðarstarfsemi og þann hulduher sem hér er um fjallað og áhyggjum veldur verður að uppræta.

Herra forseti. Að lokinni þessari umr. legg ég til að málinu verði vísað til atvmn.