20.03.1985
Neðri deild: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3719 í B-deild Alþingistíðinda. (3065)

341. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Frsm. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég tala hér fyrir nál. á þskj. 578 um frv. til 1. um breytingu á lögum nr. 51 28. apríl 1983, um Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins, frá sjútvn. Hér stendur:

„Nefndin hefur athugað frv. á fundum sínum og mælir með samþykkt þess.“

Fjarverandi afgreiðslu málsins voru Halldór Blöndal og Guðmundur Einarsson. Undir nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Ingvar Gíslason, Garðar Sigurðsson, Friðrik Sophusson og Gunnar G. Schram.