25.03.1985
Neðri deild: 51. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3809 í B-deild Alþingistíðinda. (3158)
309. mál, atvinnuleysistryggingar
Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Þetta frv. um breyt. á lögum um atvinnuleysistryggingar er flutt í kjölfar yfirlýsingar sem ríkisstj. gaf varðandi lausn á kjaradeilum. Þar er því lýst yfir að endurskoða verði bótareglur og iðgjöld atvinnuleysistrygginga með tilliti til þeirrar hækkunar sem verður á launum í almennum kjarasamningum. Í framhaldi af því var þetta frv. samið í heilbr.- og trmrn. og lagt fyrir Ed. sem gerði á því eina breytingu við 3. gr. sem nú hljóðar þannig:
„Hámarksdagpeningar atvinnuleysistrygginga skulu jafngilda launum fyrir 8 klst. dagvinnu í almennri fiskvinnu skv. gildandi kjarasamningi Verkamannasambands Íslands og vinnuveitenda á hverjum tíma, miðað við starfsaldursþrep eftir 7 ár. Lágmarks dagpeningar eru 1/4 hluti sömu launa.“
Í 79. gr. almannatryggingalaga er ákvæði um að ráðh. skuli innan sex mánaða breyta upphæðum bóta skv. þeim lögum ef breyting hefur orðið á vikukaupi í almennri verkamannavinnu. Í reynd hefur þessi sex mánaða frestur ekki verið notaður, heldur reynt að láta bótaupphæðir verða samstiga kauphækkunum. Í lögum um atvinnuleysistryggingar og nú síðast í lögunum frá 1981 eru hins vegar engin samsvarandi ákvæði, heldur hafa iðgjöld og bætur miðast við tilgreindan launaflokk í samningi Verkamannasambands Íslands og vinnuveitenda. Bætur og iðgjöld hafa þó jafnóðum hækkað þegar kaup skv. hinum tiltekna launaflokki hækkaði vegna nýrra samninga eða vegna vísitöluuppbótar.
Það má segja að þetta hafi verið eðlileg regla og fullnægjandi trygging fyrir tengslum launa og bóta meðan það var aðalreglan við samningagerð að kaup skv. tilgreindum launaflokkum hækkaði, en flokkum fjölgaði ekki að ráði. Nú er hins vegar svo komið að aðalkjarabætur felast oftar en ekki í tilflutningi starfa milli launaflokka, enda er svo komið nú að í dag tekur enginn laun eftir þeim launaflokki sem við er miðað í lögum um atvinnuleysistryggingar, 8. flokki, og sá flokkur er nú aðeins notaður til að reikna út iðgjöld og bætur. Störf þeirra launþega sem á sínum tíma tóku laun skv. 8. flokki eru nú flokkuð í 13. flokk og eiga skv. gildandi kjarasamningum að færast í 15. launaflokk 1. maí n. k. Þetta misræmi stakk svo í augu við síðustu samningsgerð að ríkisstj. hét því, eins og ég sagði í upphafi máls míns, að beita sér fyrir leiðréttingu á Alþingi í því skyni að hækka viðmiðunarflokk bóta til samræmis við þær breytingar sem orðið hafa á röðun starfa í launaflokka frá því að lögin voru sett 1981. Við þá leiðréttingu þótti rétt að miðað yrði, eins og gert var 1981, við þann flokk sem greitt væri eftir fyrir almenna fiskvinnu, enda munu einna flestir taka laun skv. þeim launaflokki. Því liggur beint við að nefna þau störf sem miða skal við, en ekki rígbinda bætur áfram við númeraðan launaflokk. Um þessa breytingu fjalla þrjár fyrstu greinar þessa frv., eins og fram kemur í aths. með því.
Í 4. gr. frv. eru hins vegar nýmæli sem segja má að leiði af setningu laganna frá 1981, en með þeim lögum öðluðust félagsmenn BHM og BSRB rétt til atvinnuleysisbóta á sama hátt og aðrir launþegar. Bætur skv. síðastnefndu lögunum greiðast hins vegar ekki úr Atvinnuleysistryggingasjóði, heldur af ríki eða sveitarfélögum hverju fyrir sig án iðgjaldainnheimtu, enda er ekki um sameiginlegan bótasjóð aðila að ræða. Þetta leiðir til þess að í gangi eru þrjú aðskilin kerfi sem eru þó að því leyti til eins að öll mál á að afgreiða í samræmi við lögin nr. 64/1981 um atvinnuleysistryggingar með síðari breytingum.
Af þessu leiðir að hver sem sækir um bætur vegna atvinnuleysis verður að hafa unnið a. m. k. 425 klst. innan ramma viðkomandi kerfis til að öðlast lágmarksbótarétt. Skv. þessu er það því hugsanlegt að launþegi sem unnið hefur alls 1272 klst. á síðustu tólf mánuðum skv. samningum ASÍ, BSRB og BHM eigi þegar upp er staðið engan lagalegan rétt til bóta. Hér er því lagt til að heimilað verði að leggja saman vinnuframlag til ákvörðunar bóta og greiða úr hverju kerfi fyrir sig að tiltölu.
Herra forseti. Ég legg til að lokinni þessari umr. að frv. verði vísað til 2. umr. og heilbr.- og trn. Ég legg mikla áherslu á, þar sem verkalýðshreyfingunni var lofað að þessi breyting yrði gerð, og fer þess á leit við hv. n. að hún hraði afgreiðslu þessa máls, en meðferð málsins í hv. Ed. hefur tekið nokkurn tíma.