26.03.1985
Sameinað þing: 64. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3828 í B-deild Alþingistíðinda. (3176)
303. mál, reglur um byggingar framhaldsskóla
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Fsp. hv. 1. landsk. þm. um þetta efni er mjög tímabær, ekki einungis að því er varðar þessar byggingar heldur ýmsar aðrar sem nauðsynlegt er að fá endurskoðun á normareglur um. Það er rétt að látin hafa verið gilda norm grunnskólabygginganna um þær skólabyggingar framhaldsskóla sem hafnar hafa verið eftir 1. janúar 1978. Þá er það fyrst og fremst 11. gr. þeirrar reglugerðar sem er frá 30. ágúst 1978. Þar er getið um beinan byggingarkostnað skólarýmis og sagt hvernig hann eigi að vera áætlaður miðað við stærð þess og skipt í: 1) rými heimangöngu- og heimanakstursskóla, eins og það er skilgreint í reglum eða normum sem svo eru kallaðar af einhverjum ástæðum, 2) heimavistarrými nemenda og íbúðir þess starfsfólks sem þarf vegna heimavistar skv. ákvæðum reglna eða norma, 3) rými vegna íbúða kennara umfram það sem fellur undir þann lið sem ég var að lesa, og svo 4) annað rými sem ríkisþátttaka er viðurkennd í skv. sérstöku samkomulagi hverju sinni. Síðan var gefin út reglugerð síðar á árinu 1978 sérstaklega um norm fyrir leikfimihúsnæði og félags- og samkomuaðstöðu. Þetta gildir enn. Ég hef ekki enn þá fengið nýjar tillögur um þetta efni en ég hef lagt áherslu á að fá þær sem allra fyrst.